Hugveitan er vefkerfi sem mun opna almenningi raunhæfar þverpólitískar þáttökuleiðir við stjórnun landsins.
Almenningur og stjórnvöld geta unnið saman í gagnvirku samstarfsferli jafnt og þétt yfir kjörtímabilið.
Almenningur getur nýtt samanlagða þekkingu sína og færni til að leiða erfið mál til lykta eftir þeim nýju þátttökuleiðum sem Hugveitan opnar.
Sívirkt og opið þátttökuferli Hugveitunnar opnar möguleika á þýðingameiri og dýpri þátttöku almennings heldur en hefðbundar leiðir bjóða upp á.
Almenningur gæti undirbúið og samið frumvörp að eigin frumkvæði og lagt fyrir Alþingi og jafnframt unnið að frumvarpsgerð í samstarfi við stjórnvöld.
Stærstu möguleikar internetsins í þágu lýðræðis felast í því að leiða saman áhugasama einstaklinga með ólíka þekkingu og ólíkar skoðanir til þess að vinna sameiginlega að bestu niðurstöðu í málum.
Á Laugardaginn fyrir viku var rætt um Hugveituna í þættinum Krossgötur á Rás 1. Umfjöllunin var á tveimur stöðum í þættinum og á þá hluta má hlusta hér að neðan. Þáttinn í heild má hlusta á hlusta á hér og hala niður hér, en þar kemur margt annað áhugavert fram að vanda.
Fyrri hlutinn:
Adobe Flash Player not installed or older than 9.0.115!
Seinni hlutinn:
Adobe Flash Player not installed or older than 9.0.115!