
Hugveitan er vefkerfi sem mun opna almenningi raunhæfar þverpólitískar þáttökuleiðir við stjórnun landsins.
Almenningur og stjórnvöld geta unnið saman í gagnvirku samstarfsferli jafnt og þétt yfir kjörtímabilið.
Almenningur getur nýtt samanlagða þekkingu sína og færni til að leiða erfið mál til lykta eftir þeim nýju þátttökuleiðum sem Hugveitan opnar.
Sívirkt og opið þátttökuferli Hugveitunnar opnar möguleika á þýðingameiri og dýpri þátttöku almennings heldur en hefðbundar leiðir bjóða upp á.
Almenningur gæti undirbúið og samið frumvörp að eigin frumkvæði og lagt fyrir Alþingi og jafnframt unnið að frumvarpsgerð í samstarfi við stjórnvöld.
Stærstu möguleikar internetsins í þágu lýðræðis felast í því að leiða saman áhugasama einstaklinga með ólíka þekkingu og ólíkar skoðanir til þess að vinna sameiginlega að bestu niðurstöðu í málum.
previous next
Ef þér hugnast eitt eða fleira af eftirfarandi skaltu skoða nánar það sem finna má á þessari síðu:
- að róttæk lýðræðisleg umbót verði gerð á stjórnkerfi Íslands
- að almenningur fái stóraukin tækifæri til að láta rödd sína heyrast á þýðingamikinn hátt
- að möguleikar internetsins verði nýttir á skynsamlegan hátt við útfærslu lýðræðislegra ferla
- að stórauknir möguleikar almennings til þátttöku hafi ekki íþyngjandi eða ólýðræðislegar hliðarverkanir
- að gagnsæi stjórnkerfisins verði aukið til muna
- að almenningur hafi sinn eigin þingsal á internetinu samhliða Alþingi
- að almenningur hafi opinn aðgang að fagmannlegum lýðræðislegum samstarfsvettvangi þar sem vinna má að lagafrumvörpum, skýrslum, þingsályktunum og fleiru – og almenningur velji viðfangsefni að eigin frumkvæði
- að almenningur hafi – í krafti tiltekinnar samstöðu – sömu úrræði og þingmenn til framlagningar þingmála á Alþingi, þ.e.a.s. frumvarpa, fyrirspurna, ályktunna og skýrsla
- að almenningur hafi tillögu og fyrirspurnarétt – í krafti tiltekinnar samstöðu – allsstaðar í stjórnsýslunni
- að nefndastörf á vegum stjórnvalda fari fram á opnum vettvangi sem býður upp á þátttöku almennings og samfélagslegt eftirlit með tímamörkum og virkni
- að almenningur stjórni þjóðfélagsumræðunni í meiri mæli
- að hver og einn þingmaður færi stuttan persónulegan rökstuðning fyrir afstöðu sinni, eða afstöðuleysi, í öllum málum sem greitt er atkvæði um á Alþingi og birti hann á þar til gerðu vefsvæði
Allt þetta snertir einhvern flöt á hugmynd sem ég skrifaði lokaritgerð um í Heimspeki, Hagfræði og Stjórnmálafræði við Háskólann á Bifröst sumarið 2007.
Stutt kynningarblað um kjarnahugmyndina úr ritgerðinni er að finna hér. Þar er henni lýst miðað við lágmarksbreytingar á núverandi kerfi en hugmyndin sem slík mun styðja vel við róttækar breytingar.
Nákvæmari og víðtækari lýsingu af hugmyndinni er að finna í ritgerðinni sjálfri sem nálgast má hér. Þar er einnig að finna umfjöllun um inntak lýðræðishugtaksins, gagnrýni á þá leið að breyta stjórnarskrá á tveimur þingum með kosningar í milli og fleira til.
Einhverjar hugmyndir sem ekki komust inn í ritgerðina eða sprottið hafa síðan henni var skilað er einnig að finna á síðunni eða eru væntanlegar innan skamms. Þær snerta meðal annars:
- að almenningur geti kosið persónur beinni kosningu til Alþingis
- að kosning á persónum og kosning á stefnumálum verði aðskilin rétt eins og við á innan stjórnmálaflokka, á flokksþingum og í prófkjörum
- að almenningur geti mótað tillögur að nýrri stjórnarskrá á þar til gerðu vefsvæði á jafnréttisgrundvelli
- að almenningur gæti útbúið raðaðan lista yfir þau gildi sem hann vill að Ísland hafi í hávegum á hverjum tíma
- að almenningur geti lagt fram og mótað stefnuskrár og verkefnalista til handa Alþingi á þar til gerðu vefsvæði
|
|
Framvindan
Vísir að Hugveitunni er nú í vinnslu í formi hugbúnaður fyrir sveitarfélög, félagasamtök og stjórnmálaflokka. Sjá:

Hugveitan samfélagslausnir ehf. | Innovation House, Eiðistorgi 13-15, 170 Seltjarnarnesi | hugveitan (hjá) hugveitan.is |
2007